Starbucks hefur valið Fastus sem samstarfsaðila sinn á Íslandi. Samstarfið er þess eðlis að Fastus mun sjá um þjónustu og viðhald á kaffivélum og eldhústækjum á kaffihúsum Starbucks hér á landi. Starbucks opnar sín fyrstu kaffihús á Íslandi á næstu vikum.
,,Það er okkur mikill heiður að hafa verið valin sem samstarfsaðili Starbucks. Tæknideild okkar mun sinna þjónustu og viðhaldi á kaffivélum og eldhústækjum fyrir staði þeirra hér á landi. Samstarfið byggir á fagmennsku, áreiðanleika og sérþekkingu sem falla vel að kröfum og væntingum eins virtasta kaffihúsamerki heims. Fyrir páska fór fram sérhæfð þjálfun tæknimanna okkar á vélum og búnaði Starbucks og er það hluti af markvissri innleiðingu og tryggingu á fyrsta flokks þjónustu,“ segir Ástrós Kristinsdóttir, markaðsstjóri Fastus í tilkynningu.
Fastus sér fyrirtækjum og fagaðilum í heilbrigðis- og veitingageiranum fyrir tækjum, búnaði og rekstrarvörum. Hjá tæknideild félagsins starfa 50 sérþjálfaðir tæknimenn sem annast uppsetningar, viðhald og gæðaheimsóknir. Fastus rekur stærsta þjónustuverkstæði og varahlutalager landsins í þessum geira en verkstæðin eru staðsett í Reykjavík, á Akureyri og Selfossi.