Arnar S. Gunnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK sem er nýtt svið innan tæknifyrirtækisins.
,,Það er bæði spennandi og krefjandi verkefni að leiða nýtt svið Öryggislausna OK. Við ætlum að bjóða upp á öfluga ráðgjöf og byggja upp enn öflugra framboð í öryggislausnum. Við ætlum að veita þessum mikilvæga málaflokki aukið vægi til að styðja enn betur við okkar viðskiptavini og mæta auknum kröfum á heimsvísu,“ segir Arnar.
Arnar kemur til OK frá Controlant þar sem hann starfaði í fjögur ár og bar meðal annars ábyrgð á öryggis- og tæknimálum félagsins. Áður starfaði hann sem innviðahönnuður hjá Arion banka og þar áður var hann tæknistjóri hjá Origo. Arnar er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík auk fjölda alþjóðlegra vottana í öryggis- og tæknimálum, eins og segir í fréttatilkynningu.
Arnar hefur starfað við tækni- og öryggismál í yfir 20 ár og þekkir því vel til í þessum geira. ,,Ég hef sérhæft mig í stjórnun, ráðgjöf og úttektum í þessum málaflokki og hef unnið með flestum stærstu fyrirtækjum landsins. Í yfir áratug hef ég haldið námskeið og fyrirlestra á alþjóðavettvangi til að hjálpa fólki og fyrirtækjum að skilja enn betur þetta landslag og þær áhættur sem geta leynst þarna.“