fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Þurfa að skerpa á nokkrum hlutum og þétta raðirnar fyrir leikinn við Evrópumeistarana

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sædís Rún Heiðarsdóttir landsliðskona var að vonum sátt með 1-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM í gær, sem styrkir stöðuna í riðlinum mikið.

„Við fórum inn í leikinn til að taka þrjú stig og það er virkilega sætt að gera það. Við vitum að þessi þrjú stig voru mikilvæg,“ sagði Sædís við 433.is eftir leik.

„Mér fannst við hafa nokkuð góð tök á leiknum. Við gáfum þeim kannski nokkur færi en það var aðallega eftir okkar mistök. Það er því eitthvað sem við þurfum að skerpa á. En mér fannst við eiga marga góða spilkafla og krossa sem við hefðum getað skorað úr.“

Ísland mætir Evrópumeisturum Englands í næsta leik á laugardag og ljóst er að það verður öðruvísi leikur, þar sem íslenska liðið getur líklega ekki stýrt gangi mála eins og í gær.

„Það er gott að fara með þrjú stig í næsta leik. Við þurfum að skerpa á einhverjum hlutum og þétta okkur aðeins varnarlega því þetta verður náttúrulega allt öðruvísi leikur,“ sagði Sædís um leikinn á laugardag.

„Það er alltaf gaman að máta sig við þessa andstæðinga og ég er full tilhlökkunar.“

Viðtalið í heild er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arnar opinberar hóp sinn á morgun – Fyrri leikurinn utan glugga

Arnar opinberar hóp sinn á morgun – Fyrri leikurinn utan glugga
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tjáði sig um næstu skref – Orðaður við starf Guardiola

Tjáði sig um næstu skref – Orðaður við starf Guardiola
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda