

Forseti Brazil, Luiz Inácio Lula da Silva, hefur greint frá áhugaverðu samtali sínu við landsliðsþjálfarann Carlo Ancelotti varðandi Neymar.
Neymar, markahæsti leikmaður í sögu Brasilíu, hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla og takmarkaðs spiltíma og var ekki valinn í síðasta landsliðshóp. Umræða um hvort hann eigi að fara á HM hefur því verið heit í heimalandinu.
Lula sagði frá því í útsendingu á YouTube að Ancelotti hefði leitað ráða hjá honum. „Hann spurði mig hvort Neymar ætti að vera valinn,“ sagði forsetinn.
Svar Lula var skýrt. „Ef hann er í góðu líkamlegu ástandi þá hefur hann hæfileikana. Spurningin er hvort hann hafi enn hungrið og viljann.“
Ummælin hafa vakið athygli í Brasilíu þar sem framtíð Neymar með landsliðinu er enn óljós.