

Lisandro Martínez var rekinn af velli í leik Manchester United gegn Leeds United eftir að hafa togað í hár Dominic Calvert-Lewin.
Atvikið átti sér stað þegar United er þegar 2-0 undir á heimavelli og staða liðsins því orðin erfið. Dómarinn tók hart á brotinu og sýndi Martínez beint rautt spjald.
United er því manni færri það sem eftir lifir leiks og þarf að reyna að snúa við erfiðri stöðu gegn Leeds.
Reglurnar um þetta eru á hreinu og virtist Lisandro gera þetta viljandi.
