fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

United virðist geta gleymt því að fá Luis Enrique

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Luis Enrique, sem hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester United, er nú sagður líklegur til að skrifa undir nýjan samning við Paris Saint-Germain.

Enrique, 55 ára Spánverji, hefur verið nefndur meðal helstu kandídata United eftir að Ruben Amorim lét af störfum hjá félaginu í síðasta mánuði.

En samkvæmt enskum miðlum stefnir allt í að hann hafni áhuga United og framlengi frekar dvöl sína í París áður en núverandi samningur hans rennur út í lok næsta tímabils.

Sömu heimildir herma að fulltrúar Manchester United hafi farið til Parísar og rætt við fyrrum þjálfara Barcelona í von um að sannfæra hann um að taka við liðinu. Forráðamenn United áttu að hafa reynt að fá hann til að bíða með nýjan samning.

Enrique er þó sagður telja að starf hjá United henti sér ekki á þessum tímapunkti. Þá eru einnig sögusagnir um að ef hann yfirgefi PSG myndi hann helst vilja snúa aftur til Barcelona. Þetta lítur því út fyrir að vera vonbrigði fyrir United í leit þeirra að nýjum knattspyrnustjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool