

Manchester United ætlar að halda sig við skýra stefnu á leikmannamarkaðnum í sumar og láta hvorki verðbólgu né umboðsmenn stjórna ákvörðunum sínum.
Stjórnarformaðurinn Omar Berrada segir félagið ætla að fylgja sömu nálgun og á síðasta ári, þar sem blanda af reynslu og ungum leikmönnum var lykillinn að velgengni.
United hyggst bæta við að minnsta kosti fimm leikmönnum í sumar og er Ederson frá Atalanta sagður nálægt því að verða fyrsti leikmaðurinn inn, eftir samkomulag upp á um 38 milljónir punda.
Einnig eru Mateus Fernandes og Carlos Baleba á radarnum.
Berrada leggur áherslu á aga í fjárfestingum. „Við megum ekki láta markaðinn stjórna okkur. Við vitum hvað við getum eytt og verðum að halda okkur við það,“ sagði hann og sagði umboðsmenn geta gleymt því að breyta skoðunum félagsins.