

Robbie Keane hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari Ferencváros eftir 18 mánaða veru hjá félaginu.
Keane tók við liðinu í janúar 2025 og náði strax góðum árangri þegar hann stýrði því til ungverska meistaratitilsins sama ár. Á þessu tímabili bætti hann svo við bikarmeistaratitli og fór með liðið alla leið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Ferencváros endaði einnig í öðru sæti deildarinnar á tímabilinu, en þrátt fyrir þann árangur hefur Keane ákveðið að stíga til hliðar.
Áður en hann tók við ungverska liðinu stýrði Keane Maccabi Tel Aviv til meistaratitils í Ísrael.
Ekki liggur fyrir hvert næsta skref hans verður, en talið er að hann sé opinn fyrir því að halda áfram í Evrópu eða snúa aftur til ensku úrvalsdeildarinnar.