

Eins og eftir alla leiki sinna manna í Fram skrifaði Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru, stórskemmtilegan pistil eftir jafntefli karlaliðsins við KR á dögunum, sem birtist á heimasíðu félagsins. Þar skaut hann aðeins á Vesturbæinga.
Lýsir Stefán því nefnilega í pistlinum hvernig Framaranum Kristjáni Frey hafi verið meinað að tromma á vellinum. „Trommur eru bannaðar á KR-vellinum! Hvers vegna? Jú, vegna þess að Vesturbæingar hata allt sem gott er og skemmtilegt. Taktleysið er algjört í eiginlegri og óeiginlegri merkingu,“ skrifaði Stefán.
Leiknum lauk með dramatísku 2-2 jafntefli, þar sem Fram komst yfir og jafnaði aftur á lokamínútunum.
„Á heimleiðinni skutlaði Rabbi fréttaritaranum og Hnífsdalstrymblinum heim og fræddist um drakónísk bönn Vesturbæinga við slagverksleik. Mennirnir sem hata ryþma og gleði fengu makleg málagjöld,“ skrifaði Stefán enn fremur.
Þess má geta að trommur hafa verið bannaðar á Meistaravöllum um nokkurt skeið. Ekki er vitað um að þær séu bannaðar á fleiri stöðum.