

Átta leikmenn hafa verið tilnefndir til verðlauna sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Arsenal á flesta fulltrúa á listanum en þrír leikmenn toppliðsins eru tilnefndir. Það eru markvörðurinn David Raya, varnarmaðurinn Gabriel og miðjumaðurinn Declan Rice sem allir hafa átt stóran þátt í sterku gengi Lundúnaliðsins.
Manchester City á tvo leikmenn á listanum, markakónginn Erling Haaland og kantmanninn Antoine Semenyo sem hóf tímabilið hjá Bournemouth áður en hann gekk til liðs við City.
Manchester United fyrirliðinn Bruno Fernandes er einnig meðal þeirra tilnefndu eftir frábært tímabil þar sem hann hefur lagt upp flest mörk í deildinni eða alls 19.
Þá eru Brentford-framherjinn Igor Thiago, sem hefur skorað 22 mörk og er næstmarkahæstur á eftir Haaland, og Morgan Gibbs-White hjá Nottingham Forest einnig á listanum.
Sigurvegari verðlaunanna verður valinn eftir atkvæðagreiðslu stuðningsmanna og sérfræðinga þegar tímabilinu lýkur.