

Alisha Lehmann, leikmaður Leicester City og einn þekktasti kvenknattspyrnumaður heims á samfélagsmiðlum, hefur vakið mikla athygli eftir að hún birti myndir úr fríi sínu á Instagram.
Lehmann, sem er 27 ára gömul og oft kölluð „kynþokkafyllsti knattspyrnumaður heims“, nýtti leikhlé hjá Leicester til að slaka á í sólinni áður en lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram. Leicester hafði tveggja vikna pásu á milli taps gegn Chelsea og síðasta leiks tímabilsins gegn Everton.

Svissneska landsliðskonan birti nokkrar myndir þar sem hún naut sólarinnar í sundlaugargarði. Á einni myndinni sést hún í rauðum sundfötum á sólbekk, á annarri í svörtum bikinífatnaði og á þeirri þriðju situr hún við sundlaug í fjólubláum sundbol.

Færslurnar fengu gríðarlega athygli frá fylgjendum hennar, en Lehmann er með yfir 15 milljónir fylgjenda á Instagram. Þá hafa stuðningsmenn Leicester einnig hrósað henni mikið á tímabilinu, en hún var valin leikmaður ársins hjá félaginu þrátt fyrir að hafa aðeins skorað eitt mark.
Lehmann gekk til liðs við Leicester í janúar 2026 eftir stutta dvöl hjá Juventus og Como á Ítalíu.
