fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Messi ræðir leikmennina sem taka við keflinu – „Hann minnir mig á sjálfan mig þegar ég var ungur“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 11. maí 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi hefur hrósað ungstirni Barcelona, Lamine Yamal, í hástert og telur argentínska goðsögnin að spænski táningurinn geti orðið einn besti leikmaður heims á næstu árum. Messi segir jafnframt að Yamal minni sig á sjálfan sig þegar hann var að stíga sín fyrstu skref með aðalliði Barcelona.

Messi lét þessi orð falla á viðburði á vegum Adidas þar sem hann var spurður hvaða ungi leikmaður hefði heillað hann mest upp á síðkastið. Þar nefndi hann Yamal án þess að hika.

„Það er ný kynslóð af frábærum leikmönnum að koma fram, en ef ég þarf að velja einn vegna aldurs hans og framtíðarinnar sem bíður hans þá er það Lamine Yamal. Fyrir mér er hann sá besti og hann minnir mig á sjálfan mig þegar ég var ungur,“ sagði Messi.

Yamal hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar slegið fjölda meta hjá Barcelona. Kantmaðurinn hefur spilað yfir 150 leiki fyrir félagið og skorað 49 mörk. Þá varð hann nýlega yngsti leikmaðurinn í sögu félagsins til að ná 40 mörkum í öllum keppnum og sló þar með met sem hafði staðið síðan árið 1915.

Í Meistaradeild Evrópu varð hann einnig yngsti leikmaðurinn til að skora tíu mörk eða fleiri í keppninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gleymdi eiginkonu sinni sem lét alla vita – Skammaður af aðdáendum sínum

Gleymdi eiginkonu sinni sem lét alla vita – Skammaður af aðdáendum sínum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool spurðist fyrir um mögulegan arftaka Slot

Liverpool spurðist fyrir um mögulegan arftaka Slot
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar leiður að sjá þessa umræðu á Íslandi – „Ekki gott og menn finna alveg fyrir þessu“

Arnar leiður að sjá þessa umræðu á Íslandi – „Ekki gott og menn finna alveg fyrir þessu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar opnar sig um samtal sitt við fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United – Var brugðið þegar hann mætti til starfa á Old Trafford

Arnar opnar sig um samtal sitt við fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United – Var brugðið þegar hann mætti til starfa á Old Trafford