

Arnar Grétarsson, fótboltaþjálfari til margra ára og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Arnar fékk spennandi tilboð frá NSÍ Runavík í Færeyjum nýlega, starf sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson var svo ráðinn í.
„Ég var mjög spenntur og þetta var komið langt. En svo fékk ég kaldar lappir. Mér fannst þetta ógeðslega leiðinlegt en það er frábært að sjá að Siggi er að gera góða hluti.
Hann er flottur þjálfari og stendur sig vonandi frábærlega, það verður allavega þægilegra fyrir mig,“ sagði Arnar.
Nánar í spilaranum.