
Kvennalið frá Norður-Kóreu, Naegohyang, mun síðar í mánuðinum fara í sjaldgæfa heimsókn til Suður-Kóreu. Liðið mætir Suwon FC í undanúrslitum Meistaradeildar Asíu þann 20. maí.
Alls munu 27 leikmenn og 12 starfsmenn ferðast yfir landamærin, en þetta er í fyrsta sinn síðan 2018 sem íþróttafólk frá Norður-Kóreu heimsækir Suður-Kóreu.
Forseti Suður-Kóreu, Lee Jae-myung, ku vilja bæta samskipti ríkjanna og gæti þetta verið liður í því.
Sigurvegarinn mætir annaðhvort Melbourne City eða Tokyo Verdy Beleza í úrslitaleiknum, sem fer einmitt einnig fram í Suwon þann 23. maí.