
Dregið hefur verið í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna, en dregið var í höfuðstöðvum KSÍ.
16-liða úrslitin verða leikin dagana föstudaginn 15. maí og laugardaginn 16. maí.
Breiðablik eru ríkjandi bikarmeistarar eftir að hafa unnið 3-2 sigur á FH í úrslitaleiknum í fyrra.
Þrír Bestu deildarslagir eru á dagskrá í 16-liða úrslitum, en dráttinn í heild má sjá hér að neðan.
16-liða úrslit
Valur – Grindavík/Njarðvík
Tindastóll – ÍBV
Þór/KA – Stjarnan
Keflavík – Víkingur R.
Fram – ÍA
Þróttur R. – Breiðablik
Selfoss – FH
Fylkir – FHL