
Paris Saint-Germain tók á móti Bayern Munchen í kvöld í stórkostlegum fótboltaleik. Um var að ræða fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Bayern byrjaði af krafti og fékk víti eftir um stundarfjórðung sem Harry Kane skoraði úr. Khvicha Kvaratskhelia var þó ekki lengi að svara fyrir PSG og Joao Neves kom þeim yfir með skallamarki.
Michael Olise jafnaði á 41. mínútu og það leit út fyrir að staðan í hálfleik yrði 2-2 en þá fékk PSG fremur umdeilt víti, eftir að boltinn fór í höndina á Alphonso Davies. Ousmane Dembele fór á punktinn og skoraði.
Kvaratskhelia og Dembele komu PSG svo í 5-2 á fyrsta stundarfjórðungi seinni hálfleiks og leit út fyrir að Frakkarnir væru að sigla fram úr.
Þá tóku Bæjarar við sér á ný. Dayot Upamecano skoraði áður en Luis Diaz sýndi stórkostleg tilþrif og minnkaði muninn í eitt mark.
Síðasti stundarfjórðungur leiksins var heldur rólegur eftir allt fjörið framan af. Lokatölur 5-4 og allt opið fyrir seinni leikinn í Þýskalandi.