
Liverpool er farið að skoða markverði fyrir sumarið þar sem það virðist æ líklegra að Alisson fari til Juventus.
Alisson er talinn á förum frá Liverpool eftir að hafa verið frábær á Anfield um árabil. Félagið er með öflugan varamarkvörð í Giorgi Mamardashvili en ekki er víst að hann taki einfaldlega við stöðunni.

Diogo Costa hjá Porto er nú sagður efstur á blaði Liverpool yfir markverði. Hann hefur verið orðaður við stærri lið í þó nokkurn tíma. Er hann með klásúlu í samningi sínum upp á um 52 milljónir punda.
Liverpool hefur einnig velt fyrir sér ögn ódýrari kostum. Þar má nefnda Bart Verbruggen hjá Brighton, Robin Roefs hjá Sunderland og James Trafford hjá Manchester City.