

Ítalski fréttamaðurinn Fabrizio Romano hefur á undanförnum árum orðið eitt þekktasta nafnið í heimi félagaskiptafrétta – en nú hefur hann viðurkennt að hann sakni annars í lífinu.
Romano, sem er 33 ára, hefur byggt upp gríðarlega vinsældir með óþreytandi vinnu sinni og nánum tengslum við stærstu nöfn knattspyrnuheimsins. Hann er fyrir löngu orðinn helsti upplýsingagjafi margra stuðningsmanna þegar kemur að félagaskiptum og þekktur fyrir slagorðið sitt „Here we go“.
Þrátt fyrir þann árangur viðurkennir hann að hann leiti nú að einhverju meira persónulegu. Í viðtali við ítalska fjölmiðlakonuna Diletta Leotta sagðist hann vera tilbúinn að fórna vinsældum sínum fyrir stöðugt samband.
„Já, ég myndi skipta milljónum fylgjenda út fyrir eitt gott samband,“ sagði Romano.
„Það er auðveldara að fá 10 milljónir fylgjenda en kærustu.“

Hann segir að lífsstíll hans geri samband erfitt, þar sem hann þarf nánast stöðugt að vera í símanum. „Það snýst ekki bara um vinnutíma, heldur símanotkunina. Þú getur verið í kvöldverði og allt í einu kemur stór frétt,“ útskýrði hann.
Romano hefur áður verið í samböndum, en segir starfið hafa haft áhrif. Hann rifjaði meðal annars upp atvik þegar frétt stöðvaði náið augnablik með hjásvæfu sinni á þeim tíma.
„Ég mun alltaf muna Sergio Reguilon,“ sagði hann og hló. „Hann hringdi í mig um miðja nótt til að staðfesta félagaskipti og ég varð að svara, jafnvel þó tímasetningin væri ekki sú besta.“
Romano viðurkennir að hann hafi lengi sett ferilinn í forgang, en nú sé kominn tími til að leita jafnvægis.
Þrátt fyrir allt er ljóst að hann heldur áfram að vera í fremstu röð þegar kemur að félagaskiptafréttum, jafnvel þótt hann vonist eftir meiri ró í einkalífinu.