

Frank Lampard er farinn að horfa til næsta tímabils með Coventry City og hefur sett unga leikmenn á óskalista sinn.
Lampard er nálægt því að stýra Coventry upp í ensku úrvalsdeildina, en liðið þarf aðeins eitt stig úr næstu fjórum leikjum til að tryggja sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2001.
Samkvæmt enskum blöðum hefur Lampard þegar hafið undirbúning fyrir sumarið og hefur sérstakan áhuga á Jesse Derry, ungum leikmanni Chelsea.
Derry, sem er 18 ára, hefur komið við sögu í tveimur leikjum með aðalliði Chelsea á tímabilinu, báðum í bikarkeppni. Hann hefur hins vegar skarað fram úr með U21-liði félagsins þar sem hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp fjögur í 20 leikjum.
Hann hefur einnig vakið athygli í Unglingadeild Evrópu og er landsliðsmaður Englands undir 19 ára aldri.
Derry er sonur Shaun Derry og er talinn eiga bjarta framtíð fyrir sér, þó samkeppni um sæti í aðalliði Chelsea sé hörð.
Lampard vonast til að geta fengið hann til liðs við Coventry.