
Óánægður stuðningsmaður Arsenal segist ætla að fara í mál við félagið eftir tap gegn Bournemouth um helgina. Fjallað er um þetta í enskum miðlum.
Arsenal tapaði 1-2 á heimavelli, sem var þriðja tap liðsins í síðustu fjórum leikjum og setur það titilbaráttuna á Englandi í uppnám. Manchester City er sex stigum á eftir toppliðinu en á leik til góða og þar að auki mætast liðin innbyrðis á sunnudag.
Stuðningsmaðurinn, Eric Kyama frá Úganda, segist hafa hafið lögfræðilegt ferli vegna andlegs álags og kvíða sem hann telur sig hafa orðið fyrir vegna frammistöðunnar undanfarið.
Hann birti yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sakar félagið um alvarlega vanrækslu og skort á metnaði.
Kyama gagnrýnir einnig knattspyrnustjórann Mikel Arteta harðlega og segir hann hafa skort taktíska getu í leiknum gegn Bournemouth.
Hér að neðan má sjá þetta.
I am suing @Arsenal football club for emotional distress, among other offences. This kind of performance is unacceptable!
Cc: @BBCSport @cnnsport @DailyMail @guardian @DhakabaKigongo @AllanDarren @dailytelegraph @DailyMonitor @newvisionwire @piersmorgan @m8arteta @DavidLumansi pic.twitter.com/9rZYmQjgjI
— Eric Kyama (@erickyama5) April 11, 2026