
Wayne Rooney telur að Manchester City hafi sálfræðilegt forskot á Arsenal í baráttunni um enska meistaratitilinn.
Rooney bendir á að reynsla City-liðsins í titilbaráttu, undir stjórn Pep Guardiola, gæti skipt sköpum þegar líður á lokasprett tímabilsins.
„Ég held að City hafi forskotið, einfaldlega út af stjóranum og leikmönnunum. Þeir halda ró sinni betur en Arsenal,“ sagði Rooney.
Arsenal hefur verið besta liðið á Englandi í vetur og er með sex stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
City á þó leik til góða og eiga liðin eftir að mætast innbyrðis, auk þess sem Arsenal hefur hikstað undanfarnar vikur á sama tíma og það virðist vera að kvikna á City.