
Oasis-bróðirinn Liam Gallagher var ómyrkur í máli á samfélagsmiðlum eftir ummæli fjölmiðlamannsins Richard Keys um meint brot Manchester City á fjárhagsreglum.
Keys velti því fyrir sér hvernig City gæti haldið áfram að eyða háum fjárhæðum á leikmannamarkaðnum á meðan félagið bíður niðurstöðu í máli sem snýr að yfir 115 meintum brotum á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
Það fór illa í Gallagher, sem er þekktur stuðningsmaður City. „Haltu kjafti brundheilinn þinn,“ skrifaði hann til Keys.
City hefur neitað öllum ásökunum og bíður enn niðurstöðu í málinu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gallagher lætur Keys heyra það, en hann hefur áður gagnrýnt ummæli hans þegar sá síðarnefndi sagði titla City síðustu ár eiga að vera stjörnumerkta.
City styrkti lið sitt vel í janúar með því að fá inn Antoine Semeyo og Marc Guehi. Það hefur borgað sig því liðið er nálægt því að elta Arsenal uppi á toppi deildarinnar.