fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Thomas Frank rekinn frá Tottenham

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 10:01

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thomas Frank hefur verið rekinn sem stjóri Tottenham eftir afleitt gengi frá því hann tók við í sumar. David Ornstein greinir frá þessu.

Frank tók við Tottenham í sumar af Ange Postecoglou, sem var rekinn þrátt fyrir að landa Evrópudeildartitlinum, en liðið hafnaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar undir hans stjórn í vor.

Daninn, sem er 52 ára, náði aldrei að vinna stuðningsmenn á sitt band. Tottenham hefur ekki unnið í átta leikjum í röð og er aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

1-2 tap Tottenham gegn Newcastle í gær reyndist banabiti Frank. Fínt gengi hans í Meistaradeildinni dugir honum ekki til að hanga í starfi lengur.

Frank var áður stjóri Brentford og gerði ansi fína hluti þar. Tottenham hefur þegar hafið leit að arftaka hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle

Mourinho orðaður við starfið hjá Newcastle
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool

Tveir öflugir sóknarmenn sagðir á blaði Liverpool