Borussia Dortmund er búið að ná samkomulagi við Sunderland um kaup á miðjumanninum efnilega Jobe Bellingham.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Fabrizio Romano en Bellingham mun kosta þýska félagið um 33 milljónir evra.
Bellingham hjálpaði Sunderland að komast í efstu deild Englands á ný í vetur og fetar nú í fótspor bróður síns, Jude, sem fór til Dortmund og síðar Real Madrid.
Dortmund hefur mikla trú á sóknarmanninum en Sunderland mun fá 15 prósent af næstu sölu leikmannsins.
Bellingham er aðeins 19 ára gamall og er gríðarlegt efni en hann var einnig orðaður við Frankfurt í Þýskalandi.