Joao Felix, sóknarmaður Chelsea, virðist vera farinn að slá sér upp með kólumbísku fyrirsætunni Valentina Rueda Velez, ef marka má slúðurblöðin úti í heimi.
Felix var keyptur aftur til Chelsea síðasta sumar og skrifaði undir sex ára samning. Hann gat hins vegar lítið og var lánaður til AC Milan í janúar, þar sem hann gerði lítið einnig. Portúgalinn er snúinn aftur til Chelsea en virðist allt ekki í áætlunum þar og er búið að taka af honum treyjunúmerið.
Hinn 25 ára gamli Felix hefur í raun aldrei staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans á yngri árum en það virðist allavega ganga vel utan vallar núna, þar sem hann er staddur með nýju kærustunni í Miami.
Velez birti myndbönd af þeim saman á samfélagsmiðla á dögunum en eyddi þeim þó skömmu síðar. Hún gerði garðinn frægan í þáttunum Too Hot To Handle í fyrra og ef fréttirnar eru sannar er hún fyrsta kærasta Felix frá því hann og Margarida Corceiro fóru í sitt hvora áttina fyrir tveimur árum.