Það eru auknar líkur á því í dag að Thomas Partey, leikmaður Arsenal, sé á förum frá félaginu í sumar.
Þetta kemur fram í grein ESPN en samkvæmt þeirra heimildum er Partey að undirbúa sig fyrir brottför.
Partey hefur verið í viðræðum við Arsenal um nýjan samning en útlit er fyrir að samkomulag muni ekki nást.
Arsenal ku hafa boðið Partey 200 þúsund pund á viku sem eru hans laun í dag en hann vill fá launahækkun samkvæmt þessum fregnum.
Samningur Partey við Arsenal rennur út þann 30. júní og eru þónokkur félög sem vilja fá hann á frjálsri sölu.
Miðjumaðurinn hefur leikið með enska félaginu undanfarin fimm ár en hann er 32 ára gamall og var áður hjá Atletico Madrid.