Fiorentina er að ganga frá samkomulagi við Edin Dzeko um að ganga í raðir félagsins, hann kemur frítt frá Fenerbache.
Dzeko mun fá um 200 milljónir í sinn vasa fyrir tímabilið.
Dzeko er 39 ára gamall framherji frá Bosníu en hann hefur átt frábæran feril, hann hefur spilað með Manchester City, Roma, Inter og fleiri liðum.
Fiorentina er að ráða Stefano Pioli sem stjóra liðsins en óvíst er hvað verður um Albert Guðmundsson.
Albert var á láni hjá Fiorentina á liðnu tímabili frá Genoa en ákvörðun um framtíð hans ætti að koma í ljós á næstu dögum.
Albert hefur verið orðaður við Inter en hann átti flotta spretti með Fiorentina en náði ekki alveg takti vegna meiðsla.