Manor Solomon framherji Tottenham er fastur í Ísrael eins og fleiri, þar var hann að gifta sig en öll flug frá Ísrael hafa verið sett á ís.
Stríð ríkir nú á milli Ísraels og Íran en það hófst fyrir helgi og ekki sér fyrir endan á því.
Solomon er frá Ísrael en hann var á láni hjá Leeds en flaug heim til að giftast Dana Voshina.
Brúðkaupið fór fram á Kahi Events Resort hótelinu í Ísrael þar sem engu var til sparað.
Þau ætluðu svo að fara í brúðkaupsferð en fá ekki að fara í loftið þar sem sprengjum hefur rignt yfir Ísrael síðustu daga.