fbpx
Fimmtudagur 31.júlí 2025
433Sport

Selur klám á netinu og fékk óvænt skilaboð frá einum þekktasta íþróttamanni heims – ,,Ég vildi ekki tala við hann“

433
Sunnudaginn 15. júní 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alice Goodwin er ekki nafn sem allir kannast við en hún er fyrirsæta og er einnig afskaplega vinsæl á OnlyFans síðunni þar sem hún selur klámfengið efni.

Goodwin lenti á sínum tíma í því að fá skilaboð frá engum öðrum en Cristiano Ronaldo sem er einn besti fótboltamaður sögunnar.

Það er Goodwin sjálf sem greinir frá en hún vill meina að hún hafi einfaldlega ekki haft neinn áhuga á að ræða né kynnast portúgölsku stórstjörnunni.

Atvikið átti sér stað fyrir mörgum árum en Ronaldo hefur verið á föstu í þónokkur ár en var um tíma einhleypur er hann lék með bæði Manchester United og Real Madrid. Hann hefur verið í sambandi með Georgina Rodriguez síðan 2017.

Ronaldo spilar í dag í Sádi Arabíu og er fertugur en hann hafði áhuga á að kynnast Goodwin á sínum tíma að sögn OnlyFans stjörnunnar.

,,Ég vildi bara ekki tala við hann, það var einfalt. Ég á mér týpu og hann er ekki mín týpa,“ sagði Goodwin.

,,Ég hef tjáð mig um þetta áður en ég einfaldlega hafði engan áhuga. Hann virtist áhugasamur en ég svaraði ekki. Kannski voru það mistök!“

Goodwin þekkir til knattspyrnuheimsins en hún var um tíma kærasta Jermaine Pennant sem spilaði með liðum eins og Arsenal og Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Holding færir sig nær Sveindísi

Holding færir sig nær Sveindísi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Laumuðust inn í skjóli nætur og skildu þessa mynd eftir í Kópavoginum

Laumuðust inn í skjóli nætur og skildu þessa mynd eftir í Kópavoginum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Andri Fannar staðfestur í Tyrklandi

Andri Fannar staðfestur í Tyrklandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sádarnir vilja stórstjörnuna

Sádarnir vilja stórstjörnuna
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Staðfesta komu Xhaka
433Sport
Í gær

Leikmaður Liverpool hafnaði Mourinho

Leikmaður Liverpool hafnaði Mourinho
433Sport
Í gær

Högg í maga United

Högg í maga United