Það eru einhverjir sem hafa heyrt um konu sem ber heitið Arabella Mia en hún er mikill stuðningsmaður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Mia er frægust fyrir þjónustu sína á OnlyFans síðunni þar sem aðdáendur hennar geta keypt klámfengið efni af fyrirsætunni.
Hún hefur komist í fréttirnar fyrir það að mæta nánast nakin á heimavöll Arsenal en hún er máluð og er einnig í nærbuxum.
Fyrir utan nærbuxurnar þá er Mia nakin en hún lætur mála á sig treyju Arsenal og neitar að klæðast brjóstarhaldara á leikjum liðsins.
,,Já það er alveg rétt, ég er nakin, nánast nakin! Málningin getur byrjað að leka sem er ekki hentugt á svona viðburði,“ sagði Mia.
,,Ég lendi í því að brjóstin séu nánast sjáanleg sem er ekki eitthvað sem ég vil en þetta er hluti af þessu. Yfirleitt lendi ég í engum vandræðum nema það sé gríðarlega heitt, rigningin er ekkert vandamál.“
Mia verður væntanlega mætt aftur í málningunni næsta vetur þegar Arsenal hefur keppni í ensku úrvalsdeildinni.