Framherjinn Han Kwang-son sást aftur á vellinum fyrir helgi er hann spilaði með landsliði Norður-Kóreu gegn Japan.
Um er að ræða fyrrum undrabarn sem vakti fyrst athygli sem leikmaður Cagliari í Serie A árið 2017 þá aðeins 18 ára gamall.
Juventus var hrifið af leikmanninum og keypti hann fyrir fimm árum síðan þar sem Kwang-son spilaði ekki leik og var fljótt farinn.
Það var heimsfaraldurinn COVID-19 sem hafði stór áhrif á Kwang-son sem hefur ekki sést spila félagsleik síðan árið 2021 fyrir Al Duhail í Katar.
Framherjinn er í dag 25 ára gamall og sást á vellinum í fyrsta sinn í langan tíma fyrir helgi er Norður-Kórea tapaði 1-0 gegn Japan.
Norður-Kórea tók harðar á heimsfaraldrinum en önnur lönd og var Kwang-son í raun fastur þar í þrjú ár og gat ekki komið ferlinum á flug á ný.