
Ísland mætir Lúxemborg á föstudag og Liechtenstein þremur dögum síðar. Sverrir var ekki með í síðasta verkefni vegna meiðsla en hann segir stöðuna á sér í dag þokkalega.
„Ég er búinn að taka þátt í síðustu tveimur leikjum og er á fínum stað. Ég á eitthvað í land en vonandi næ ég að haldast heill sem mest og þá get ég hjálpað landsliði og félagsliði,“ sagði Sverrir við 433.is í dag.
Sverrir gekk í raðir Midtjylland frá gríska liðinu PAOK í sumar og nýtur lífsins í Danmörku.
„Þetta hefur verið fínt. Gengi liðsins hefur verið upp og ofan og við erum ekki alveg sáttir með hvar við erum. Það hafa verið bæði vond og góð úrslit. Ég hef líka verið í meiðslum og er að koma til baka.“
Sverrir var spurður út í muninn á gríska og danska boltanum.
„Það er rosalega erfitt að bera þær saman. Grískur fótbolti er mjög tilfinningaríkur. Það er mikið undir í hverjum leik og allt töluvert stærra. En danska deildin er mjög góð og mér fannst vera kominn tími fyrir mig og fjölskylduna og breyta til og prófa eitthvað nýtt. Þú færð ýmislegt í Grikklandi sem þú færð ekki í Danmörku og öfugt. En við erum bara mjög ánægð.“
Ítarlegt viðtal má nálgast hér að neðan. Vegna tæknilegra örðugleika í upptöku er það í tveimur hlutum.