

Valur er svo gott sem úr leik eftir stórt tap í heimaleik gegn SKN St. Pölten frá Austurríki í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Leikurinn fór fram á Hliðarenda en Rita Schumacher var allt í öllu í liði gestanna.
Schumacher skoraði eitt og lagði upp tvö mörk í 0-4 sigur gestanna fra´Austurríki.
Um var að ræða fyrir leik liðanna en sigurvegarinn úr einvíginu fer í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Ljóst er að Valur þarf kraftaverk til að komast áfram í riðlakeppnina og erfitt er að sjá liðið koma til baka