

Luis Diaz kantmaður Liverpool segir að það hafi verið ansi erfitt fyrir sig að eiga við það þegar löglegt mark var tekið af honum fyrir tíu dögum.
Diaz slapp einn í gegnum vörn Tottenham en eftir samskipti dómarans og VAR dómarans endaði það með því að markið var dæmt af.
Markið var löglegt og benti VAR dómarinn á það en dómarinn misskildi orð hans og dæmdi markið af.
„Þetta var mjög flókið, þetta var gríðarlega erfitt fyrir mig en ekki bara mig heldur alla liðsfélaga mína,“ segir Diaz.
„Í miðjum leiknum voru við mikið að ræða þetta, þetta hefðu verið jákvæð úrslit sem hefðu hjálpað okkur mikið.“
„Svona getur gerst, dómarar eru manneskjur. Maður þarf að taka þessu og í næsta skipti þá verður þetta gert rétt.“