Það er allt útlit fyrir að Wayne Rooney sé að gerast stjóri Birmingham í ensku B-deildinni. Einn af eigendum félagsins félagsins er NFL goðsögnin Tom Brady en endurkynni þeirra gætu orðið vandræðaleg í ljósi gamalla færsla enska stjórans.
Rooney hætti með DC United í gær eftir að MLS deildinni lauk en hann var áður stjóri Derby áður en hann hélt til Bandaríkjanna. Nú er hann sem fyrr segir að taka við Birmingham en þar er metnaðurinn mikill.
„Við þurfum að koma með hugarfar sigurvegarans og þannig kúltúr í félagið,“ sagði í yfirlýsingu félagsins.
Enskir miðlar rifja í tilefni að þessu upp gamlar færslur Rooney um NFL í ljósi þess að Brady er einn af eigendum Burnley.
„Er að reyna að horfa á Super Bowl. Hvernig er hægt að kalla þetta fótbolta. Þetta er eins og að horfa á málningu þorna. Hlakka til auglýsinga og tónlistarinnar,“ skrifaði Rooney árið 2012 þegar Brady var einmitt að keppa í sjálfum leiknum um Ofurskálina.
Fleiri svona færslur fylgdu einnig.
Því er þú nú velt upp hvort Brady muni eftir færslunum og hvort hann taki þær fyrir með Rooney þegar þeir félagar hittast á næstunni.