Ashley Young er á leið í læknisskoðun hjá Everton áður en hann skrifar undir samning við félagið.
Young er orðinn 38 ára gamall en hvergi nærri hættur og ætlar að taka slaginn með Everton á næstu leiktíð.
Samningur kappans við Aston Villa rann út í sumar og hefur hann síðan verið í leit að nýju félagi. Nú er ljóst að Everton verður áfangastaðurinn.
Kappinn var áður hjá Inter og auðvitað um langt skeið hjá Manchester United.
Everton hefur verið í hörkufallbaráttu undanfarin tvö tímabil.