Sigurður Gísli Snorrason hefur verið dæmdur í bann frá allri þátttöku í knattspyrnu keppnistímabilið 2023 af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ.
Á dögunum sagði Heimildin frá því að Sigurður hefði veðjað á fjölda leikja hér á landi á meðan hann var leikmaður Aftureldingar, þar á meðal leiki síns liðs.
Nú liggur niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar fyrir. Samkvæmt henni veðjaði leikmaðurinn fjórum sinnum á leiki sem hann tók þátt í. Sigurður hefur verið bannaður frá allri þátttöku í knattspyrnu á þessu ári.
Óheimilt er að leikmenn hér heima veðji á leiki í íslenska boltanum, þó svo að það sé ekki í þeirra deild.
Sigurður er ekki lengur á mála hjá Aftureldingu, en hann er hjá KFK í fjórðu deild.
Úr niðurstöðu í máli nr. 14/2022:
„Í greinargerð kæranda er sérstaklega vitnað til þátttöku varnaraðila í fimm veðmálum í tengslum við eigin leiki og eigið mót keppnistímabilið 2022. Hafi varnaraðili í fjögur þessara skipta sjálfur tekið þátt í umræddum leikjum með liði mfl. karla hjá Aftureldingu í Lengjudeild karla. Líkt og fram kemur í greinargerð varnaraðila eru ekki gerðar athugasemdir við getraunaleiki hans á tímabilinu 23. júlí 2022 til 4. september 2022, sem taldir eru upp í fylgiskjali sem kærandi hefur lagt fram í málinu. Að því virtu þykir nefndinni, m.t.t. sönnunarkrafna í agamálum, sbr. dómi Áfrýjunardómstóls í máli nr. 1/2021, að fullnægjandi líkur [comfortable satisfaction] séu á sekt varnaraðila. Varnaraðili hafi með beinni þátttöku sinni í veðmálastarfsemi í tengslum við eigin leiki og eigið mót gerst brotlegur gagnvart grein 6.2. laga KSÍ og grein 4.4. reglugerðar KSÍ um knattspyrnumót.“
„Við ákvörðun viðurlaga horfir nefndin til þess að varnaraðili hafi gerst brotlegur gagnvart ákvæði laga KSÍ sem er ætlað til að standa vörð um heilindi og háttvísi í knattspyrnuhreyfingunni. Þegar aðili, sem fellur undir lögin, gerist uppvís af þátttöku í veðmálastarfsemi í tengslum við eigin leiki og eigið mót gengur það gegn grundvallarreglu um heiðarlegan leik gagnvart öllum þátttakendum leiksins. Varnaðili hafi auk þess gerst brotlegur í a.m.k. fimm skipti á sex vikna tímabili og þar af voru fjórir leikir sem hann tók þátt í sjálfur. Að mati nefndarinnar er því hér um að ræða brot á grundvallarreglu sem eru alvarlegs eðlis, sér í lagi með tilliti til þess að veðmálin lutu að leikjum sem varnaraðili tók sjálfur þátt í.
Samkvæmt því hefur aga- og úrskurðarnefndar ákveðið með vísan til 40. greinar laga KSÍ að úrskurða varnaraðila í bann frá allri þátttöku í knattspyrnu keppnistímabilið 2023, þ.e. frá 1. febrúar til 15. nóvember.“