
Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum himinnlifandi eftir sigur síns liðs á Þrótti R. í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í kvöld.
Jafnræði var með liðinum fyrstu mínúturnar. Blikakonur fóru þó að sækja í sig veðrið þegar leið á og komust yfir á 26. mínútu með marki Karítasar Tómasdóttur. Hún gerði þá vel í að færa boltann upp völlinn og koma honum út á Öglu Maríu Albertsdóttur áður en Karítas fékk hann svo aftur og skoraði.
Tiffany Mc Carty tvöfaldaði forystu Blika um fimm mínútum fyrir leikhlé. Hún skoraði þá eftir klaufagang í vörn Þróttar.
Þróttarar byrjuðu seinni hálfleik af krafti. Það voru hins vegar Blikar sem skoruðu þriðja markið og gerðu þar af leiðandi svo got sem út um leikinn. Markið gerði Hildur Antonsdóttir eftir fyrirgjöf frá Selmu Sól Magnúsdóttur.
Karítas innsiglaði svo 4-0 sigur Blika með skallamarki eftir frábæra fyrirgjöf Öglu Maríu.
,,Þetta var virkilega flottur leikur. Að sjálfsögðu höfum við stundum spilað betri bolta en baráttan, vinnusemin og hjartað sem við gáfum í þetta var alveg upp á tíu,“ sagði Vilhjálmur við Stöð 2 Sport eftir leik.
,,Það skiptir rosalega miklu máli að fá mark svona snemma. Þá nær maður aðeins að slaka á.“
,,Við ætluðum að reyna að róa okkur aðeins í spilinu. Það gekk nú kannski ekkert alveg en við áttum góðar sóknir og góð mörk,“ sagði Vilhjálmur svo er hann var spurður út í það hvað hafi verið rætt í hálfleik. Blikar fóru með 2-0 forystu inn í leikhlé.
Þegar hefur verið tilkynnt að Vilhjálmur muni hætta með Breiðablik í haust. Þetta var þó ekki hans síðasti leikur við stjórnvölinn.
,,Ekki alveg, það eru fleiri leikir eftir,“ sagði hann um sína stöðu. Breiðablik mætir Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag.