fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
433Sport

Azpilicueta sleppur við bann

Helga Jónsdóttir
Þriðjudaginn 25. maí 2021 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

César Azpilicueta fékk beint rautt spjald í lokaleik Chelsea í ensku úrvalsdeildinni gegn Aston Villa. Chelsea áfrýjaði strax dómnum og í dag var það staðfest að enska knattspyrnusambandið hefur dregið spjaldið til baka.

Azpilicueta fékk spjaldið fyrir að slá Jack Grealish undir lok leiks. Eftir áfrýjun var niðurstaðan sú að þetta hefði verið óviljaverk hjá spænska landsliðsmanninum.

Azpilicueta hefði byrjað næsta tímabil í þriggja leikja banni en sleppur nú við það. Leiknum lauk með 2-1 sigri Aston Villa en þar sem Leicester tapaði sínum leik komst Chelsea í Meistaradeildina.

Chelsea mætir Manchester City í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu næsta laugardag. Eftir það tekur EM við hjá Azpilicueta en hann var valinn í spænska landsliðshópinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mourinho gerir kröfu um þetta ef hann á að taka við Real Madrid

Mourinho gerir kröfu um þetta ef hann á að taka við Real Madrid
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Algjör u-beygja hjá Liverpool vegna mótmæla stuðningsmanna

Algjör u-beygja hjá Liverpool vegna mótmæla stuðningsmanna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Endar Marcus Rashford hjá Arsenal?

Endar Marcus Rashford hjá Arsenal?