
Rafael van der Vaart, fyrrum leikmaður Tottenham og Real Madrid, hvetur Harry Kane til að ganga ekki til liðs við síðarnefnda félagið. Að hans mati á Kane frekar að fara í annað lið á Englandi, til dæmis Manchester United.
,,Það hljómar kannski klikkað en maður myndi nánast segja honum að fara til Manchester United eða eitthvað, vertu áfram á Englandi,“ sagði van der Vaart.
Hann bætti einnig við að það gangi yfirleitt ekki vel hjá enskum leikmönnum sem reyna fyrir sér hjá Real Madrid. Sjálfur yfirgaf Hollendingurinn spænsku höfðuborgina fyrir Spurs á sínum tíma.
Kane er að eiga enn eitt góða tímabilið hjá Tottenham. Hann er reglulega orðaður við brottför í stærri lið en hann hefur aldrei unnið stóran titil með liði sínu.
Spurs mætir Manchester City í úrslitum enska deildabikarsins þann 25.apríl og það er spurning hvort sá leikur gæti haft eitthvað að segja með framtíð Kane.