
Bernd Leno gerði sig sekan um hryllileg mistök þegar að hann handlék boltann fyrir utan vítateig í viðureign Wolves og Arsenal í kvöld.
Leno hefur eitthvað misreiknað ferð boltans en hann fær hann beint í hendina og rekinn af velli fyrir vikið, sá fyrsti síðan að David Seaman var rekinn af velli gegn West Ham í nóvember árið 1993.
Rúnar Alex fékk eldskírn sína í ensku úrvalsdeildinni fyrstu íslenskra markvarða en hann stóð vaktina með prýði og varði vel en honum og Arsenal til gremju endaði leikurinn 2-1 Wolves í hag.
Hægt er að sjá mistök Leno hér fyrir neðan.