fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Enska úrvalsdeildin: Manchester United valtaði yfir 10 menn Southampton – Crystal Palace hafði betur gegn Newcastle

Alexander Máni Curtis
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 22:10

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en seinni bylgjan kláraðist rétt í þessu en þar mættust Manchester United og Southampton og tók Newcastle á móti Crystal Palace á St. James’ Park.

Manchester United – Southampton

Manchester United valtaði yfir Southampton en þeir léku manni færri í 88. mínútur þar sem Alexandre Jankewitz var rekinn af velli eftir tveggja mínútna leik eða 79 sekúndur öllu heldur, Aron Wan-Bissaka skoraði fyrsta mark Manchester United á 18. mínútu og bætti svo Marcus Rashford við því öðru á 25. mínútu.

Jan Bednarek varð svo fyrir því óhappi að skora sjálfsmark á 34. mínútu og skoraði Edinson Cavani fjórða mark United og staðan 4-0 í hálfleik.

Manchester United hélt markaskoruninni áfram í seinni hálfleik og skoraði Anthony Martial á 69. mínútu og bætti svo Scott McTominay við því sjötta á 71. mínútu, Jan Bednarek gerði sig svo brotlegann í eigin teig og var rekinn af velli fyrir vikið,  Bruno Fernandes skoraði svo mark úr víti á 88. mínútu og  Anthony Martial bætti svo við áttunda marki United á 90. mínútu og innsiglaði svo Daniel James 9-0 sigur Manchester United með marki á fjórðu mínútu uppbótatíma.

Lokatölur 9-0 fyrir Manchester United sem eru jafnir stigum Manchester City á toppnum en þeir eiga tvo leiki til góða.

Newcastle – Crystal Palace

Newcastle sem að vann óvæntan sigur gegn Everton í síðustu umferð voru ekki jafn sprækir í dag en liðið tapaði 1-2 gegn Crystal Palace, Jonjo Shelvey kom heimamönnum yfir á 2. mínútu en svöruðu svo Crystal Palace svo fyrir sig og voru búnir að jafna og komast yfir á fjögurra mínútna kafla en þeir Jaïro Riedewald og Gary Cahill skoruðu á 21. og 24. mínútu.

Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 1-2 fyrir Crystal Palace

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“

Netverjar í áfalli yfir mat sem var til sölu – „Þetta er ekki gervigreindarmynd“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar leiður að sjá þessa umræðu á Íslandi – „Ekki gott og menn finna alveg fyrir þessu“

Arnar leiður að sjá þessa umræðu á Íslandi – „Ekki gott og menn finna alveg fyrir þessu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar opnar sig um samtal sitt við fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United – Var brugðið þegar hann mætti til starfa á Old Trafford

Arnar opnar sig um samtal sitt við fyrrum knattspyrnustjóra Manchester United – Var brugðið þegar hann mætti til starfa á Old Trafford
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þreyttir á þrálátum meiðslum og horfa til Portúgal

Þreyttir á þrálátum meiðslum og horfa til Portúgal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“