

Liverpool gekk í gær frá samningi við Schalke um að fá Ozan Kabak á láni frá félaginu fram á sumar, Liverpool getur svo keypt varnarmanninn í sumar ef allt gengur vel.
Kabak er tvítugur varnarmaður frá Tyrklandi, hann sló í gegn með Galatasaray í heimalandinu. Hann hélt þaðan til Stuttgart en féll með liðinu úr þýsku úrvalsdeildinni, Schalke situr svo á botni þýsku deildarinnar í dag.
Kabak fór í læknisskoðun í Þýskalandi í gær og hélt svo yfir til Liverpool í dag með einkaþotu sem Liverpool borgaði fyrir hann.
Kabak byrjar á að fara í próf fyrir COVID-19 veirunni áður en honum verður hleypt inn í búbbluna hjá Liverpool. Talið er að Kabak gæti spilað sinn fyrsta leik á sunnudag þegar Liverpool mætir Manchester City.
Jurgen Klopp fékk Kabak og Ben Davies frá Preston í gær en þá kom í ljós að Joel Matip spilar ekki meira á þessu tímabili. Fyrir eru Joe Gomez og Virgil Van Dijk frá og óvíst er hvenær þeir snúa aftur. Klopp sagði í dag að engar líkur séu á að Virgil van Dijk spili meira á þessu tímabili.
