fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
433Sport

Sigurður Gísli opnar sig: Mætti vopnaður byssu í apótek – „Ég hef aldrei verið jafnhræddur á ævinni“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 26. nóvember 2020 10:14

Mynd: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslendingur á þrítugsaldri mætti vopnaður byssu í apótek í Amsterdam í febrúar. Um var að ræða Sigurð Gísla Snorrason, leikmann Þróttar í Vogum. Sigurður tjáði sig um atvikið í hlaðvarpsþættinum Miðjan á Fótbolti.net.

„Þarna er ég í miklu rugli og kominn í mjög slæman félagsskap. Ég á að fara þarna út og það klúðrast svakalega,“ segir Sigurður í samtali við Hafliða Breiðfjörð, ritstjóra Fotbolti.net, í þættinum. Sigurður segir frá frelsissviptingunni en hann var frelsissviptur í 36 tíma. „Ég hef aldrei verið jafnhræddur á ævinni um líf mitt og hélt ég myndi deyja þarna.“

„Svo er ég neyddur til að fara að ræna apótek. Ég var ekkert eðlilega ánægður þegar þeir settu mig í það því þá vissi ég að ég myndi ná að losna. Þetta endar á því að ég fæ byssu og á að ræna apótekið en ég var ekki að fara að gera það,“ segir Sigurður.

„Það er ekkert sjálfsagt að gera það ekki því undir svona kringumstæðum verður maður rosalega hræddur og stjórnar engu. Ég náði að sleppa því og annars þá værum við ekki að tala saman hér,“ segir Sigurður, hann lagði skotvopnið á borðið þegar hann gekk inn í apótekið. Þremur dögum eftir að hann var handtekinn var Sigurði sleppt.

Lesa meira: Íslendingur frelsissviptur í Amsterdam: Píndur í apótek vopnaður byssu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Xhaka hugsanlega á förum á ný – Gæti hitt fyrir goðsögn

Xhaka hugsanlega á förum á ný – Gæti hitt fyrir goðsögn
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Útilokaði ekki að fara frá United í sumar

Útilokaði ekki að fara frá United í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Spjótin beindust að Hlíðarenda um helgina – Fyrrum þjálfarinn ómyrkur í máli og ritstjórinn skaut föstum skotum

Spjótin beindust að Hlíðarenda um helgina – Fyrrum þjálfarinn ómyrkur í máli og ritstjórinn skaut föstum skotum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Segir Arsenal og United að horfa til Palace í sumar

Segir Arsenal og United að horfa til Palace í sumar
433Sport
Í gær

Langt frá launahæstu leikmönnum Liverpool þrátt fyrir svakalegan verðmiða

Langt frá launahæstu leikmönnum Liverpool þrátt fyrir svakalegan verðmiða
433Sport
Í gær

Segir að sinn maður eigi skilið að vinna Ballon d’Or í vetur

Segir að sinn maður eigi skilið að vinna Ballon d’Or í vetur