Andy Robertson, leikmaður Liverpool, hefur hrósað landa sínum Scott McTominay.
Robertson og McTominay spila saman með skoska landsliðinu en eru erkifjendur þegar kemur að ensku úrvalsdeildinni.
McTominay spilar með Manchester United sem leikur einmitt gegn Liverpool um helgina.
,,Hann hefur verið frábær á öllu tímabilinu í liði Manchester United sem hefur fengið sína gagnrýni,“ sagði Robertson.
,,Hann hefur komið vel frá þessu. Ég hlakka til að mæta honum á sunnudag, augljóslega vonast ég til að hafa betur.“