Martyn Pert, er nýjasta viðbótin í þjálfarateymi Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United. Hann er mættur til starfa.
Pert er 41 árs gamall og sérhæfir sig í líkamlegu atgervi leikmanna, hann á að hjálpa til við að minnka meiðslin sem herja á hóp Solskjær.
Pert hefur starfað hjá Watford, Cardiff og Coventry og er Pert mættur til starfa á Old Trafford.
Með þessu vonar Solskjær að líkamlegt atgervi leikmanna verði betra, meiðsli lykilmanna síðustu vikur hafa haft mikil áhrif á gæði liðsins.
Pert vann með landsliði Bahrain en starfaði síðast hjá Vancouver Whitecaps í MLS deildinni.
Hann kemur inn í teymið þar sem Mike Phelan, Kieron McKenna og Michael Carrick eru.