Islam Slimani er á leiðinni til Newcastle en það er Sky Sports sem greinir frá þessu.
Hann mun skrifa undir lánssamning við félagið sem gildir út tímabilið.
Slimani hefur ekki átt fast sæti í liði Leicester á þessari leiktíð og vill því komast burt.
Hann kom til Leicester frá Sporting árið 2016 og hefur skorað 8 mörk í 35 leikjum fyrir félagið.