fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
433Sport

Sjáðu þegar Bjarni Ben slasaði sig um helgina ,,Ég er eftir atvikum sæmilegur“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 10. desember 2018 08:48

Bjarni Benediktsson Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra tók þátt í styrktarleik fyrir Tómas Inga Tómasson í gær.

Leikið var í Egilshöll en Tómas hefur legið á spítala í yfir 200 daga á þessu ári.

Ástæða er að aðgerð sem Tómas fór í á mjöðm heppnaðist illa og hefur heilsa hans ekki náð sér. Hann heldur því í fjórða sinn undir hnífinn í Þýskalandi á næstunni.

Leikið var í Egilshöll í gær en þar voru þjóðþekkt andlit, þar má nefna Eið Smára Guðjohnsen, Bjarna og fleiri góða.

Hjörvar Hafiðason, fyrrum markvörður og knattspyrnusérfræðingur tók þátt í leiknum en hann hafði áhyggjur af heilsu Bjarna Ben.

,,Er í lagi með þig frændi?,“
skrifaði Hjörvar á Twitter og birti myndband af því þegar Bjarni tognaði hressilega aftan í læri.

,,Takk, eftir atvikum sæmilegur. Þetta lagast á nokkrum vikum. Það er svo sem ekki eins og það sé leikur um næstu helgi,“ sagði Bjarni sem er að keyra fjárlög í gegnum Alþingin þessa stundina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur

Bauð öllum leikmönnum í afmælið sitt í gær en mætti svo ekki sjálfur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir logið til um alvarleg slagsmál – „Ég sló höfðinu óvart í borð“

Segir logið til um alvarleg slagsmál – „Ég sló höfðinu óvart í borð“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Athæfi hans gegn Real Madrid hefur nú einnig áhrif á HM

Athæfi hans gegn Real Madrid hefur nú einnig áhrif á HM