Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH hefur á síðustu mánuðum mátt þola það að liggja undir þungum ásökunum vegna samnings við Hafnarfjarðabæ um byggingu á knatthúsi í Kaplakrika.
FH hefur hafið byggingu á knatthúsi í fullri stærð sem mun bera nafnið Skessan. Hafnarfjarðarbær keypti íþróttahúsið og knatthúsin Risann og Dverginn af FH fyrir 790 milljónir króna. Þetta var gert vegna þess að bærinn taldi tilboðin í byggingu á knatthúsinu of há og þessi leið var valinn. Fljótlega barst FH 100 milljóna króna greiðsla frá bænum til að ýta verkinu af stað.
Þá máttu heyrast sögur um að þessar milljónir hefðu verið notaðar í að gera upp skuldir við leikmenn og fleira slíkt. Jón Rúnar sem er formaður knattspyrnudeildar hefur mátt sitja undir þessum sögum sem hann segir langt frá raunveruleikanum.
,,Það er alveg sama hversu harður þú ert, þetta er alltaf vont. Þó að þú sért búinn að velkjast í þessum sjó lengi. Þetta verður aldrei það sem þú sækir í,“ segir Jón Rúnar í 90 mínútum, hlaðvarpsþætti 433.is.
Hann segir verst fyrir fjölskyldu sína að hlusta á sögur um að hann sé að gera eitthvað misjafnt við opinbert fé.
,,Verst er þetta fyrir þá sem eru í kringum þig heima. Sem skilja alls ekki af hverju maður heldur áfram, í þessu. Í sjálfboðavinnu, maður ræður því sjálfur hvort maður sé í henni. Ef þetta er ofan í kaupið líka, þá er eðlilegt að maður spyrji sig hvort maður sé í bara hálfviti, er maður bara hálfviti? Vantar í mann eitthvað vit, til þess að sjá það er ekkert vit í því að standa í þessu. Maður er þakklátur fyrir það að hafa ekki meira langtíma minni en þetta, maður vaknar morguninn eftir og það er byrjað að byggja, allt er gleymt. Menn halda áfram með bros á vör.“
En hvað segir Jón Rúnar við þeim sögum sem heyrast hvað mest í kringum Ásvallalaug og þeim megin í bænum?
,,Hluti af þessu fór í það þegar Friðrik (Friðrik Dór, sonur Jóns Rúnars) gifti sig,“ sagði Jón og gefur lítið fyrir umræðuna sem honum finnst á lágu plani. ,,Það er ekki hægt að koma í veg fyrir þessa umræðu. Á endanum, er það nú þannig að þeir hafa hæst sem minnst vita. Og þeir hafa nú enn hærra sem hefðu gjarnan viljað vera annars staðar en þarna megin í bænum.“
Viðtalið við Jón má heyra í öllum helstu hlaðvarpsveitum og hér að neðan.