Arnór Sigurðsson lék sinn fyrsta A landsleik fyrir Ísland í kvöld er liðið mætti Belgíu í Þjóðadeildinni.
Arnór er gríðarlega efnilegur leikmaður en hann hefur tekið stórt stökk á mjög stuttum tíma á ferlinum.
Hann er á mála hjá CSKA Moskvu í Rússlandi en fyrir tveimur árum síðan var hann að spila með ÍA hér heima.
Arnór var keyptur til Norrkoping í Svíþjóð árið 2017 og svo ári síðar borgaði CSKA væna summu fyrir hann.
Fyrir þremur árum síðan komst Arnór ekki í U16 ára landslið Íslands en hann þótti ekki vera nógu stór og sterkur.
Arnór tók þeirri ákvörðun ekki illa og hefur svo sannarlega svarað mörgum sem höfðu ekki tru á honum.
Ótrúleg bæting hjá þessum 19 ára gamla strák.
@arnorsigurdsson komst sælla minninga ekki í U16 landslið @footballiceland fyrir 3 árum vegna þess að hann var ekki nógu stór og sterkur. Ákvað að nota mótlætið til að verða betri. Þvílíka ferðalagið #súfyrirmyndin
— Hjálmur (Dór) Hjálmsson (@helmetinho) 15 November 2018